þriðjudagur, maí 16, 2006

Víkingar.

Margir halda því fram að víkingar hafi verið slæmir og hafi haft vond áhrfi á norðurlöndin. Ekki er ég á sama máli. Víkingar bjuggu aðallega í kringum Skotland, Írland og Skandinavíu. Þeir rændu og rupluðu gulli og gersemum. Þeir börnuðu konur og drápu menn. Þeir áttu líka til að ræna konum, ekki rændu þeir þessum konum sem voru minna álitlegar heldur öfugt, komu með þær til íslands og eignuðust sem sagt falleg afkvæmi. Það er ástæðan fyrir því að það eru ljótar konur í og í kringum Bretlandseyjum en fallegar konur á Íslandi og á Skandinavíu.
Ef þið hugsið um víkinga, hugsiði þé ekki um vonda menn með hornhjálma með rautt sítt hár í fléttum? Persónulega geri ég það og að auki eru þeir í rauðum og svörtum röndóttum bolum. Hvernig væri heimurinn ef það væru bara ófríðar konur á Íslandi? Væru þá engir tannlæknar?

Hafiði einhverntíman fundið óþægilega tilfinningu? Ég var í vinnuni í dag í stiga fyrir utan hús sem er verið að byggja. Ég var að troða plasttöppum í göt á frekar ósléttu undirlagi. Allt í einu skrikaði stiginn og ég var í fjögurra metra hæð dauðskelkaður. Ég bara vissi að ég væri að detta en ég gat ekki gert neitt í því. Það er versta tilfinning sem ég hef fundið lengi.

Takk fyrir mig.

-AriG.

sunnudagur, maí 14, 2006

Ný sampistlasíða 2.

Við Guðjón ákváðum að skipta um síðu vegna vandamála með hitt blog-kerfið.

Ég ætla að hafa þetta stutt í þetta skiptið og vonum að þetta haldi aðeins lengur.

Fyrir hönd okkar blönku -Ari Gylfason.